Greiðsluseðlar 2011-2012
Kæru foreldrar og forráðamenn
Last Updated ( Monday, 05 March 2012 00:44 )
Með bréfi þessu fylgir greiðsluseðill vegna árgjalds í foreldrafélags Lækjarskóla. Hver fjölskylda greiðir aðeins einfalt gjald óháð því hversu marga nemendur fjölskyldan á í Lækjarskóla. Árgjaldið stendur undir öllum kostnaði vegna starfsemi foreldrafélagsins, einkum stóru viðburðanna tveggja sem við höldum árlega – þar sem allir nemendur og fjölskyldur geta komið saman án aðgangseyris: • Stóri piparkökudagurinn sem við höldum í desember, með vöfflukaffi fyrir alla. • Vorhátíð foreldrafélags Lækjarskóla, með hoppiköstulum, leikjum, hljómsveitum, andlitsmálun, pylsum og meðlæti. Fulltrúar í stjórn foreldrafélagsins taka þátt í samráði foreldrafélaga í bænum, foreldraráði, skólaráði Lækjarskóla o.fl. auk þess sem málefni heilsdagsskólans hafa verið til umfjöllunar og skoðunar nú í vetur. 10. bekkur nýtur góðst af samstarfinu við foreldrafélagið ár hvert, því þau fá tækifæri til að safna í sjóð vegna útskriftarferðar, annars vegar með því að bera út þessi bréf og greiðsluseðla, hins vegar aðstoða þau okkur á piparkökudeginum og vorhátíðinni við veitingaafgreiðslu ofl. Við hvetjum alla til að greiða greiðsluseðilinn sem allra fyrst, en tökum jafnframt fram að sé hann ekki greiddur, fellur hann úr gildi við lok vetrar. Með bestu kveðju, Stjórn foreldrafélags Lækjarskóla |
||
|
||
|
|
||
| Page 1 of 2 |