|
Þriðjudagur, 07 Febrúar 2012 14:38 |
Framundan er Grunnskólahátíð ÍTH. Hátíðin er haldin 15. febrúar og byrjar hún á leiksýningum frá öllum skólum bæjarins í Gaflarleikhúsinu kl. 12.00 og 15:00. Miðaverð á Grunnskólahátíðina er 2500 kr. Um kvöldið verður haldin dansleikur í íþróttahúsinu við Strandgötu. Húsið opnar kl. 19.30 og lýkur því kl. 23.30. Rútur fara frá öllum skólum á ballið nema Lækjar- og Öldutúnsskóla - en unglingarnir þaðan koma sér sjálf. Fatahengi verður á staðnum en ekki er borin ábyrgð á verðmætum og hvetjum við foreldra/forráðamenn að biðja unglinginn sinn að skilja ekki mikil verðmæti eftir í yfirhöfnum sínum. Í lok kvölds byrja rútur að fara frá Strandgötunni kl. 23. Mælst er til að foreldrar/forráðamenn sem geta, komi og nái í sinn ungling og jafnvel vinina líka. Þetta gerir okkur kleift að panta færri rútur og þar af leiðandi verður kostnaður minni. Athygli skal vakin á því að börn þeirra sem verða sótt verða með þessu móti mætt töluvert fyrr heim. Frí er í fyrstu þremur tímum þann 16. feb. fyrir nemendur í unglingadeild. Sjoppa verður á staðnum þar sem seldar verða pizzusneiðar og fleira góðgæti. Við biðjum því ykkur foreldra/forráðamenn sem geta, að sækja börnin við Fjörukrána. |
|
Kæru foreldrar/forráðamenn barna í frístundaheimilinu Lækjarskóla. |
|
Mánudagur, 06 Febrúar 2012 15:05 |
|
Þegar frístundaheimilið Lækjarskóla opnaði í ágúst s.l. undir forystu ÍTH var tekin sú ákvörðun að halda eins og kostur var í áherslur og starfsreglur þær sem heilsdagsskólinn hafði starfað eftir undir yfirstjórn skólans. Strax í upphafi, líkt og í mörgum öðrum sveitarfélögum, kom í ljós að erfitt var að manna allar stöður í frístundaheimilum í Hafnarfirði og olli það nokkru raski á starfsseminni. Þá komu einnig fram erfiðleikar með húsnæði en rými það sem heilsdagsskólinn hefur til yfirráða fyrir starfssemina hefur breyst nokkuð og valdið erfiðleikum í rekstrinum. Þetta er þó í farvegi og stendur til að leysa húsnæðismálin nú á næstu dögum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Föstudagur, 03 Febrúar 2012 09:09 |
Í gær komu nemendur frá leikskólanum Hörðuvöllum í heimsókn. Þeir skoðuðu skólann og hittu nemendur og einhverjir áttu systkini í Lækjarskóla sem þeir fengu að hitta. Nokkrir nemendur leikskólans voru veikir en eru velkomnir seinna í heimsókn. Við þökkum nemendum Hörðuvalla fyrir heimsóknina og hlökkum til að hitta þá aftur í mars. Þá koma nemendurnir aftur í heimsókn og verða með nemendum í 1. bekk í kennslustundum. |
|
Miðvikudagur, 01 Febrúar 2012 08:55 |
|
Í dag komu nemendur frá leikskólanum Arnarbergi í heimsókn. Þeir skoðuðu skólann og hittu nemendur á yngsta stigi. Þetta voru flottir krakkar sem voru duglegir að ganga í röð. Við þökkum þeim fyrir komuna og hlökkum til að hitta þá aftur í mars. Þá koma nemendurnir aftur í heimsókn og verða með nemendum í 1. bekk í kennslustundum.
|
|
Heilsdagsskóli á foreldradegi |
|
Mánudagur, 30 Janúar 2012 09:12 |
Þann 31.janúar er foreldradagur í Lækjarskóla og heilsdagsskólinn verður opinn frá 8:00 - 17:00. Boðið verður upp á síðdegishressingu kl. 14:00, kr. 190 per barn. Vinsamlega skráið börnin á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða hringið í s.534-0595. Sendið börnin með morgunnesti og hádegisverð og tímann sem barnið á að vera.
Með bestu kveðju, Sigurlaug Hrafnkelsdóttir, félagsfræðingur. s. 664-5762. Verkefnastjóri, ÍTH Lækjarskóla, |
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|