Aðalfundur foreldrafélags Lækjarskóla
Aðalfundur foreldrafélags Lækjarskóla verður haldinn í þriðjudagskvöldið 26. september nk. kl. 20:00. Í fyrirlestrarsal Lækjarskóla, við aðalinngang.
Áður en formlegur aðalfundur hefst býður foreldrafélagið upp á fyrirlestur frá Hugarfrelsi – aðferðir sem virka. Er kvíði, ónægur svefn, neikvæð sjálfsmynd eða snjalltækin að hafa áhrif á barnið þitt og gæðastundir fjölskyldunnar? Efni sem á alltaf erindi. Sjá nánari upplýsingar hér fyrir neðan.
Við lofum áhugaverðum og lifandi fyrirlestri og bjóðum upp á kaffi og léttar veitingar.Dagskrá aðalfundar
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins skólaárið 2016-2017
2. Gjaldkeri gerir grein fyrir reikningum og leggur fram til samþykktar
3. Aðalfundur ákveður upphæð árgjalds fyrir skólaárið 2017-2018
4. Lagabreytingar. Lög foreldrafélagsins eru aðgengileg hér: http://www.laekjarskoli.is/foreldrar/foreldrafelag/log/ Tillögur um lagabreytingar þurfa að berast stjórn 5 dögum fyrir aðalfund, í síðasta lagi 21. september.
5. Kosning í stjórn Foreldrafélags Lækjarskóla. Óskað er eftir tilnefningum og framboðum í stjórn félagsins. Við viljum hvetja foreldra og forráðamenn í öllum árgöngum til að taka þátt í starfi foreldrafélagsins, þetta er mjög skemmtileg leið til að kynnast öðrum foreldrum, starfsmönnum skólans og starfi skólans okkar betur. Óskum eftir framboðum í tölvupósti, kristjanathorey@gmail.com
6. Bekkjarfulltrúar
7. Skólaráð. Óskað er eftir fulltrúa foreldra í Skólaráð Lækjarskóla. Sjá nánar hér: http://www.laekjarskoli.is/skolinn/skolarad/ Þessi aðili þarf ekki að eiga sæti í stjórn foreldrafélagsins, og þarna er mjög áhugaverð leið til að kynnast starfi skólans vel og hafa áhrif á ákvarðanir og undirbúning.
8. Foreldraráð Hafnarfjarðar
9. Foreldrarölt - kynning og umræður
Vonumst til að sjá sem flesta!
Viðburðurinn er á Facebook líka:
https://www.facebook.com/events/2185533561673713/?context=create&previousaction=create&sid_create=2033535522&action_history=[%7B%22surface%22%3A%22group%22%2C%22mechanism%22%3A%22groups_composer%22%2C%22extra_data%22%3A[]%7D%2C%7B%22surface%22%3A%22create_dialog%22%2C%22mechanism%22%3A%22group_create_dialog%22%2C%22extra_data%22%3A[]%7D]&has_source=1