Aðalfundur foreldrafélags Lækjarskóla

13.9.2018

Aðalfundur foreldrafélags Lækjarskóla verður haldinn miðvikudagskvöldið 19. september nk. kl. 20:00 í fyrirlestrarsal Lækjarskóla, við aðalinngang.

Fundurinn hefst á almennum aðalfundarstörfum og síðan taka áhugaverðir fyrirlesarar við.

Dagskrá aðalfundar

1.     Skýrsla stjórnar 

2.     Gjaldkeri gerir grein fyrir reikningum 

3.     Aðalfundur ákveður upphæð árgjalds 

4.     Lagabreytingar

5.     Kosning í stjórn Foreldrafélags Lækjarskóla

6.     Bekkjarfulltrúar 

7.     Skólaráð

8.     Foreldraráð Hafnarfjarðar

9.     Foreldrarölt 

  • Anna Jóna Guðmundsdóttir námsráðgjafi Lækjarskóla ræðir um einelti.
  • Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðar kemur og ræðir mikilvægi virks foreldrarölts.
  • Eyjólfur Örn Jónsson, sálfræðingur fræðir foreldra um ábyrga netnotkun, hætturnar sem leynast á internetinu og tölvufíkn.

Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.

Vonumst til að sjá sem flesta!


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is