Bókasafn Lækjarskóla: Ertu næsta ofurhetja!

18.1.2018

Það er allt komið á fullt hér í Lækjarskóla í lestrarátakinu hans Ævars. Nemendur eru ánægðir með að Ævar sjálfur skuli vera mættur á safnið að taka á móti miðunum þeirra og ætla helst að fylla hausinn sem allra fyrst.

Lestrarátakið stendur til 1. mars, en við eigum eftir að gera ýmislegt skemmtilegt tengt átakinu á næstu vikum. Dásamlegt að eiga hann Ævar að.


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is