Fyrsti skóladagurinn í samkomubanni.
Heil og sæl.
Þá er fyrsti skóladagurinn í nýju skipulagi liðinn. Í morgun þegar við mættum hafði Lækjarskóla verið skipt upp í fjögur svæði og lætur nærri að tala megi um fjóra litla skóla: Gula-, Rauða-, Græna- og Bláaskólann. Allir, bæði starfsfólk og nemendur, tilheyra aðeins einu svæði og enginn má fara á milli svæða.
Allir stóðu sig ótrúlega vel í þessum gjörbreyttu aðstæðum og það er ljóst að nemendur, forráðmenn og starfsfólk Lækjarskóla eru að gera sitt allra besta til að láta þetta nýstárlega fyrirkomulag ganga upp.
Það er upplifun starfsfólks að nemendur hafi verið bæði yfirvegaðir og jákvæðir þegar þeir mættu í dag. Unnu þeir að skipulagi náms síns með kennurum þar sem áhersla var á að halda ákveðinni rútínu nú þegar skólahald er með breyttu sniði.
Ofurhetjurnar okkar, starfsfólk Lækjarskóla, hafa undirbúið heimakennslu síðan á fimmtudaginn í síðustu viku og hafa þurft að hugsa hlutina upp á nýtt og breyta kennsluháttum og finna lausnir á ýmsum þrautum sem felast í þeim forsendum og takmörkunum sem okkur eru sett um þessar mundir. Margir hafa nefnt að þeir líti á þetta sem tækifæri til að þróa kennsluna enn meira.
Stjórnendur undirbjuggu saman nýtt kennslu- og starfsumhverfi um helgina, en vinna nú allir hver á sínu svæðinu. Með hjálp tækninnar “hittast” þeir á fjarfundi í gegnum google.meet tvisvar á dag og fara yfir það helsta sem gefst vel og jafnframt það sem betur má fara.
Þegar öllu er á botninn hvolft er það mat okkar að þessi fyrsti dagur í nýju skipulagi hafi gengið vel fyrir sig og eins jákvæð og við erum þá erum við þess fullviss að það muni ganga enn betur á morgun.
Forráðamenn hafa líka verið frábærir síðustu daga og færum við þeim bestu þakkir fyrir að hafa boðið fram aðstoð sína bæði hvað varðar tæknileg atriði og annað. Það er svo dásamlegt að finna samkenndina og hvers við sem tilheyrum Lækjarskólasamfélaginu erum megnug þegar við tökum höndum saman.
Takk fyrir í dag.
Dögg Gunnarsdóttir skólastjóri.