10. bekkur útskrifast

10.6.2015

Þriðjudaginn 9. maí voru nemendur 10. bekkjar Lækjarskóla útskrifaðir við hátiðlega athöfn. Kór skólans söng og nemendur sáu um tónlistaratriði. Nemendum sem skarað höfðu fram úr voru veittar viðurkenningar og Rótarýklúbburinn Straumur Hafnarfirði veitti viðurkenningu fyrir hæstu meðaleinkunn í 10. bekk. Að lokum var öllum boðið í kaffisamsæti og síðan héldu nemendur og ættingjar út í sumarið.


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is