Samræmd könnunarpróf í Lækjarskóla

22.9.2015

Dagana 21.-25. september verða samræmd próf í 4., 7. og 10. bekkjum Lækjarskóla eins og kom fram í pósti sem var sendur foreldrum.

10. bekkur:     Mæting er stundvíslega kl. 8:45 og prófið sjálft hefst kl. 9:00 og stendur til kl. 12:00.
Mánudagur 21. september – íslenska
Þriðjudagur 22. september – enska
 Miðvikudagur 23. september – stærðfræði
Að prófi loknu geta nemendur sem eru í mötuneytisáskrift farið í mat í mötuneyti áður en þeir fara heim.

7. bekkur:     Mæting er stundvíslega kl. 8:45 og prófið sjálft hefst kl. 9:00 og stendur til kl. 12:00.
Fimmtudagur 24. september – íslenska
Föstudagur 25. september – stærðfræði
Að prófi loknu geta nemendur sem eru í mötuneytisáskrift farið í mat í mötuneyti áður en þeir fara heim.

4. bekkur: Mæting er klukkan 8:00. Prófið hefst klukkan 8:30 og að því loknu tekur við venjulegur skóladagur.
Fimmtudagur 24. september – íslenska
Föstudagur 25. september – stærðfræði


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is