Jólaheimsókn í Fríkirkjuna í Hafnarfirði

17.12.2015

Nemendur í 8.-10. bekkjum brugðu sér í Fríkirkjuna þann 17. desember þar sem séra Sigríður Kristín Helgadóttir spjallaði við nemendur. Hún sagði frá aðventukertunum fjórum og svo frá sögu Fríkirkjunnar. Það voru sungin jólalög og síðan var haldið í safnaðarheimilið þar sem boðið var upp á heitt súkkulaði og smákökur.
Allir voru ánægðir og gaman að segja frá því að unglingarnir fengu sérstakt hrós frá séra Sigríði fyrir prúðmennsku í kirkjunni og í safnaðarheimilinu.


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is