Glæsilegir fulltrúar Lækjarskóla
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Hafnarborg þriðjudaginn 8. mars. Fulltrúar Lækjarskóla voru þau Mímir Kristínarson Mixa og Sunna Björg Friðjónsdóttir. Mímir komst í 2. sæti í upplestrarkeppninni.
Mattías Makusi Kata fékk 1. verðlaun fyrir hönnun á borðskorti og Ragna Dúa Þórsdóttir fékk önnur verðlaun fyrir smásögu.
Við erum ákaflega stolt af okkar nemendum og eru þeir sjálfum sér og skólanum til sóma.