Litla upplestrarhátíðin

11.5.2016

Litla upplestrarhátíðin var haldin hátíðleg hjá nemendunum í 4. ÁF og 4. EÞ á sal skólans dagana 28. og 29. apríl . Foreldrum og nemendum í 3. bekk var boðið að hlusta. Þetta voru tvær hátíðir sem tókust mjög vel. Nemendur fluttu tónlistaratriði og síðan var lesið í hópum og einstaklingslega, eftir það var boðið í stofu þar sem biðu kræsingar og mættu foreldrar þar með börnum sínum. Nemendur voru afar vel æfðir og allir gengu út með bros á vör eftir að hafa notið fjölbreytts flutnings og góðra veitinga.


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is