SMT-hrósbikarinn

16.11.2018

SMT-hrósbikarinn var afhentur í dag á yngsta- og miðstigi. Hann fær einn bekkur á hverju stigi sem hefur fengið flest hrós frá starfsmönnum Lækjarskóla yfir ákveðið tímabil. Mjótt var á munum og fengu allir bekkir fjölmörg hrós. Að þessu sinni hlutu 1. HK og 6. SH SMT-bikarinn og óskum við þeim innilega til hamingju með prúðmannlega og fyrirmyndar framkomu síðustu vikur. SMT-bikar unglingadeildar verður afhentur á mánudag þar sem 9. bekkur er á Laugum. Nýtt hróstímabil hefst mánudaginn 19. nóvember og stendur til 11. janúar en þá verður bikarinn afhentur að nýju. 1.-hkYngsta-stig6.SHMidstig

Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is