Ef til verkfalls kemur:

8.3.2020

Tilkynning frá Hafnarfjarðarbæ vegna fyrirhugaðra verkfalla

Mikilvægt er að allir hlutaðeigandi fylgist vel með fréttum af fyrirhuguðu verkfalli. Öll starfsemi sveitarfélagsins mun haldast óbreytt ef ekki verður af verkfalli.

Kæru foreldrar og forráðamenn

Eins og kunnugt er hafa Starfsmannafélag Hafnarfjarðar og BSRB boðað til verkfalla frá og með mánudeginum 9. mars. Ef til verkfalla kemur mun áhrifa þeirra gæta í skólastarfinu og biðjum við ykkur að lesa vel upplýsingar hér að neðan.

Starfsmannafélag Hafnarfjarðar hefur boðað verkföll á fyrirfram ákveðnum dagsetningum; dagana 9. og 10. mars, 17. og 18. mars, 24. mars, 26. mars, 31. mars og 1. apríl. Hafi samningar ekki tekist fyrir 15. apríl munu allir félagsmenn aðildarfélaga BSRB sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum fara í ótímabundið allsherjarverkfall þar til samningar hafa tekist.

Um er að ræða um 660 starfsmenn hjá Hafnarfjarðarbæ sem flestir starfa innan grunnskóla sveitarfélagsins. Fyrirhugað verkfall nær m.a. til húsumsjónarmanna, ritara, skólaliða, frístunda- leiðbeinenda og stuðningsfulltrúa. Sérstök athygli er vakin á því að frístundaleiðbendur og starfsfólk frístundaheimila og félagsmiðstöðva mun frá og með mánudeginum 9. mars fara í ótímabundið verkfall sem þýðir að allt frístunda- og félagsstarf, fyrir og eftir skóla, fellur niður þar til samningar hafa tekist.

Vinsamlegast notið Mentor til að skrá forföll þar sem ritari verður í verkfalli á mánudag og þriðjudag og símasvörun þ.a.l. í lágmarki.

Áhrif á skólastarfið – LESIST VEL
Mánudagur 9. mars og þriðjudagur 10. Mars

Skipulag á mánudag:

1.- 4. bekkur

Kl. 08:10-09:30 1. - 4. byrjar í heimastofu. 4. bekkur fer síðan í smiðjur samkvæmt stundatöflu. Skóla lýkur 09:30

5. -7. bekkur

Kl. 08:10-09:30 Skóli hjá 5.-7. bekk þar sem allir nemendur mæta í heimastofu

Skóla lýkur 09:30

8. - 10. bekkur

Kl. 08:10-12:00 Skóli hjá unglingadeild samkvæmt stundatöflu. Nemendur í 10. bekk mæta í fyrirlestrarsal Lækjarskóla kl. 08:10 þar sem Kaplakriki er lokaður.

Í íþróttatímanum kl. 09:50 mætir 9. bekkur í fyrirlestrarsal Lækjarskóla.

Skóla lýkur 12:00

Monday's schedule

Grades 1-4

Between 08:10-09:30: Students in grades 1-4 start the day in their designated classrooms (I: heimastofa). Students in grade 4 will then attend workshops as scheduled (I: smiðja).

Grades 5-7

Between 08:10-09:30: Students in grades 5-7 will start the day in their designated classrooms (I: heimastofa).

Grades 8-10

Between 08:10-12:05: grades 8-10 will have lectures according to schedule. Students in 10th grade will however start their day in the Lecture Hall at 08:10 as Kaplakriki is closed.

Students in 9th grade who have physical education (I: íþróttir) at 09:50, will instead go to the Lecture Hall.


Skipulag á þriðjudag:

1.- 4. Bekkur

Kl. 08:10-09:30 1. - 4. bekkur byrja í heimastofu. Nemendur í 3. bekk fara síðan í smiðjur samkvæmt stundatöflu.

Skóla lýkur 09:30

5. -7. bekkur

Kl. 08:10-09:30 Skóli hjá 5.-7. bekk þar sem allir nemendur mæta í heimastofu

Skóla lýkur 09:30

8. bekkur

Kl. 08:10-12:40 - kennsla samkvæmt stundatöflu.

Skóla lýkur 12.40

9. bekkur

Samræmt könnunarpróf í íslensku. Nemendur mæta samkvæmt skipulagi sem sent hefur verið heim.

10. bekkur

Kl. 08:10-12:00 - kennsla samkvæmt stundatöflu.

Skóla lýkur 12:00

Tuesday's schedule

Grades 1-4

Between 08:10-09:30: Students will start the day in their designated classrooms (I: heimastofa). Students in grade 3 will then attend workshops as scheduled (I: smiðja).

Grades 5-7

Between 08:10-09:30: Students will start the day in their designated classrooms (I: heimastofa).

8th grade

Between 08:10-12:40: lectures according to schedule.

9th grade

On Tuesday, students in 9th grade have the national exam in Icelandic and should follow the previously announced schedule.

10th grade

Between 08:10-12:00: lectures according to schedule.

· Sundlaugar, íþróttahús og menningarstofnanir bæjarins. Sundlaugar, íþróttahús og menningarstofnanir bæjarins verða lokaðar á fyrirfram ákveðnum dagsetningum. Bókasafn Hafnarfjarðar verður opið frá kl. 10-17 með fyrirvara um skerta þjónustu

· Enginn hádegismatur fyrir unglingastig mánudag og þriðjudag.


Ótímabundið verkfall frá og með 9. mars

· Frístundaheimili. Frístundaheimili verður lokað ótímabundið, bæði fyrir og eftir skóla, frá og með mánudeginum 9. mars. Ekki verður innheimt fyrir þjónustu sem fellur niður vegna verkfalls

· Félagsmiðstöð. Félagsmiðstöð verður lokuð ótímabundið frá og með mánudeginum 9. mars

Foreldrar og forráðamenn eru, sem fyrr segir, hvattir til að fylgjast vel með fréttum því grunnskólarnir munu vera með eðlilega starfsemi ef verkfall verður slegið af.

Með góðri kveðju,

Dögg Gunnarsdóttir skólastjóri.


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is