FLY-verkefni í 7. AMT

29.11.2019

Nemendur í 7. AMT í Lækjarskóla duttu aldeilis í lukkupottinn þegar þeim bauðst vinnustofa stuttmyndargerð og þar með þátttaka í hinu alþjóðlega FLY-verkefni sem vill höfða til kviStuttmyndagerd4_1575027128153myndalæsis í kennslu barna og unglinga.

Fly samstarfsverkefnið er upprunið í Danmörku en teygir anga sína víða og er nú að hasla sér völl á Íslandi og er þar með hafin uppbygging samstarfsnets kennara á Íslandi sem tengist svo alþjóðlegu neti kennara með það markmið, að deila aðferðum sem nýta stutt og hreyfimyndagerð sem verkfæri og aðferðafræði í kennslu.

Nemendur í 7.AMT tóku vel á móti Martin Spenner, frá Danmörku. Hann hóf daginn á því að sýna stuttmynd sem kollegi hans hafði hjálpað börnum í Bólivíu að búa til. Síðan eyddi hann deginum með krökkunum og kenndi þeim að búa til stuttmynd Stuttmyndagerd2_1575027128141með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Það tókst með glæsibrag og var Martin hæst ánægður með útkomuna og var hann undrandi yfir hversu vel krakkarnir náðu að tileinka sér svo flókið viðfangsefni sem Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna er og það á ensku í þokkabót. Martin kvaddi Lækjarskóla sáttur og vildi fá að nýta afrakstur dagsins til sýningar í samskonar vinnustofum í fjarlægum löndum. Það var einróma samþykki hjá 7. AMT um það.Stuttmyndagerd3_1575027128080


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is