Hafragrautur
Hafnarfjarðarbær býður öllum grunnskólabörnum í Hafnarfirði upp á hafragraut á morgnana frá klukkan 7:50 til 8:10 og byrjum við fyrsta kennsludag á því. Grauturinn verður afgreiddur í matsal skólans.
Foreldrum stendur til boða að kaupa ávaxta- og grænmetisáskrift fyrir börn sín í morgunhressingu og fer skráning fram á áskriftarformi á heimasíðu Skólamatar www.skolamatur.is
Ef spurningar vakna, eða þið eruð með ábendingar eða athugasemdir varðandi hafragrautinn eða ávaxtaáskriftina þá hvetjum við ykkur til að senda þær á skolamatur@skolamatur.is