Hvatningarverðlaun foreldraráðs Hafnarfjarðar

5.3.2021

Foreldraráð Hafnarfjarðar hefur ákveðið að veita starfsmönnum allra grunnskóla í Hafnarfirði hvatningarverðlaun foreldraráðs fyrir árið 2020. Verðlaunin eru veitt fyrir frábær störf í heimsfaraldri.

Vegna sóttvarnaaðgerða verður ekki hægt að hafa formlega athöfn og því verður komið með viðurkenningar í hvern skóla. Einnig fá starfsmenn köku með kaffinu föstudaginn 5. mars.

Starfsmenn Lækjarskóla þakka kærlega fyrir þessa viðurkenningu.


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is