Lestrarkeppni grunnskóla hefst 18. janúar

15.1.2021

Kæru foreldrar.

Næsta mánudag 18. janúar, fer af stað keppni á milli grunnskóla ofl. á Íslandi, um flestar setningar lesnar inn á "Samróm" (sjá hér fyrir neðan). Þið getið tekið sjálf tekið þátt og þið verðið að veita samþykki fyrir því að börnin ykkar taki þátt, með skráningu, sjá https://www.samromur.is/tala - Taka þátt - Mín rödd. Sjá einnig: (1) Samrómur | Facebook

Tilgangurinn er þessi:
Til þess að tölvur og tæki skilji íslensku svo vel sé þá þarf mikinn fjölda upptaka af íslensku tali frá allskonar fólki. Þess vegna þurfum við þína aðstoð, með því að smella á "Taka þátt" þá getur þú lesið upp nokkrar setningar og lagt "þína rödd" af mörkum. Þetta er stórt samstarfsverkefni stofnana og fyrirtækja til þess að gera íslensku gjaldgenga í tölvum og tækjum. Að því koma íslenskir háskólar, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök, sem munu á næstu árum þróa nauðsynlega innviði fyrir hugbúnað sem skilur og talar íslensku. Samrómur verður hluti af þessu verkefni, opið gagnasafn raddsýna fyrir íslensku sem hver sem getur notað til þess að þróa sínar máltæknilausnir. Með þessu tryggjum við öryggi íslenskunnar á stafrænum tímum. Til mikils er að vinna fyrir skólana.

Hver vinningsskóli mun fá 3 Sphero bolts vélmenni en vélmennin tengja saman leik og forritunarkennslu og eru hönnuð til að ýta undir forvitni, sköpun og nýjar uppgötvanir. Hér er hægt að lesa nánar um Sphero Bolt Til að rifja upp stemmninguna er hér fréttaskot frá keppninni í fyrra sem var æsispennandi.


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is