Námsráðgjafi Lækjarskóla
Halla Eyberg Þorgeirsdóttir tók nýverið við tímabundinni stöðu námsráðgjafa hér í Lækjarskóla. Halla hefur starfað sem tónmenntakennari við skólann síðan í ágúst 2020, en hún er einnig menntuð sem náms-og starfsráðgjafi.
Við bjóðum Höllu velkomna til starfa á nýjum vettvangi innan sömu byggingar.