Nemendur í Hreystivali
Nemendur í hreystival fengu kynningu a líkamsræktarstöðinni Hress. Frábær þjálfari tók á móti hópnum og sýndi þeim það sem er í boði í Hress og setti upp stöðvaþjálfun sem nemendur rúlluðu upp. Eftir æfinguna var farið á Hressbarinn þar sem nemendur fengu ljúffenga heilsudrykki.
Nemendur voru hæstánægðir með þessa heimsókn og þökkum við Hress kærlega fyrir liðlegheitin.