Ólympíuhlaup ÍSÍ

6.10.2022

Hlaup1Lækjarskóli hóf gærdaginn á því að taka þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ og gekk hlaupið vonum framar. Vel á fjórða hundrað tók þátt á vegum skólans og skiluðum við næstum 900 km í hús. Hver nemandi hljóp að lágmarki 2,5 km hring um nágrenni skólans í fínu veðri. 

Gleðin var í fyrirrúmi og skemmtu nemendur og starfsfólk sér meðan á hlaupinu stóð eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. 

Að hlaupi loknu fengu allir nemendur svaladrykk áður en haldið var til baka í hefðbundnara skólastarf.

 

Hlaup4Hlaup2

 


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is