Skólablak

4.11.2021

Föstudaginn 22. Okt var haldin allsherjar blakkynning, ætluð öllum grunnskólakrökkum í 4.-6. bekk í Hafnarfirði.

Þessi viðburður hefur verið settur uppá 10 öðrum stöðum víðsvegar á landinu og er ætlunin að gera þetta að árlegum viðburði.

Markmiðið er að kynna blakíþróttina auk þess sem þetta er frábært hópefli og skemmtun fyrir alla.

Við í Lækjarskóla mættum að sjálfsögðu á staðinn með alla nemendur í 4.-6. bekk og höfðum mjög gaman af.

Hér má sjá myndir á vefsíðu Blaksambands Íslands https://bli.is/skolablak-myndir/


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is