Skólastarf í grunnskólum Hafnarfjarðar eftir páska til 15. apríl

31.3.2021

Ný reglugerð um skólahald grunnskóla kom út í dag, og gildir eftir páska fram til 15. apríl, sem færir þá niðurstöðu að grunnskólastarf hefst á þriðjudegi eftir páska líkt og í hefðbundnu skólaári.

Kennsla hefst þó ekki fyrr kl. 10 þann dag. Skólastarf er með hefðbundnu sniði, þ.e. full kennsla í öllum námsgreinum skv. stundaskrá (þó er beðið eftir að fá samþykki á því að opna megi sundlaugar fyrir grunnskólakennslu þótt þær séu lokaðar að öðru leyti og verður staðfest eftir páska).

Engin grímuskylda er hjá nemendum þótt slíkt gildi fyrir starfsfólk í sameiginlegum rýmum og ef nánd við nemendur er minni en 2m við kennslu/samskipti.

Tónlistarkennsla fer fram í grunnskólum líkt og áður og starfsfólk skólaþjónustu má fara í grunnskóla en foreldrar og aðrir gestir er óheimilt að koma í skólana á fundi, með fræðslu eða á viðburði.

Starfsemi frístundaheimila er óbreytt en mögulega þarf í einhverjum tilvikum að takmarka stærð hópa svo þeir verði aldrei með fleiri en 50 börn sem reglugerðin miðar við sem hámarksfjöldi nemenda saman í kennslu eða viðburðum innan skóla, utan sameiginlegra rýma eins og matsals og ganga.

Matarþjónusta verður óbreytt miðað við hefðbundna framkvæmd og hefst því með morgunávöxtum á þriðjudeginum í samræmi við áskriftir nemenda.

Varðandi leyfi fyrir nemendur, hvort heldur vegna veikinda eða annarra ástæðna, gilda sömu reglur og áður og engar sérstakar undanþágur eru í gildi vegna sóttvarnaáherslna.

Með von um gleðilega páska og bjartari stundir með vortímanum sem er fram undan.

Skrifstofa mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar.


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is