Þrívíddarprentari í Lækjarskóla

24.2.2022

Við erum aldeilis kát og glöð með nýja þrívíddarprentarann sem skólinn færði nemendum að gjöf fyrir frábæra frammistöðu í lestrarkeppni Samróms, en Lækjarskóli náði 2. sæti í sínum flokki og 7. sæti á landsvísu.

Prentarinn er nú staðsettur á bókasafninu þar sem nemendur geta fylgst með prentun á þrívíddar-verkefnum sínum í framtíðinni. Þetta tæki mun t.d. nýtast í forritunar- og tölvukennslu í eldri bekkjum og síðar meir í fleiri námsgreinum á öllum aldursstigum.

Eins og þið vitið þá myndaðist mikil stemning fyrir lestrarkeppninni; foreldrar og heilu fjölskyldurnar létu sitt ekki eftir liggja og tóku þátt. Stefnan er að komast alla leið á Bessastaði næsta ár og þessi góða gjöf hvetur okkur sannarlega til dáða.


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is