Tilnefningu til Foreldraverðlauna Heimilis og skóla árið 2021
Það gleður okkur að segja frá því að tvö verkefni: Myndbönd frá skólastarfi Lækjarskóla og Stafrænn póstkassi Lækjarskóla, hafa fengið tilnefningu til Foreldraverðlauna Heimilis og skóla árið 2021.
Við í Lækjarskóla erum afar stolt af tilnefningunni og það gleður okkur að nýjungar í skólastarfi okkar hljóti svo góðar viðtökur að eftir þeim sé tekið, ekki bara á heimavelli í Hafnarfirði heldur nú á landsvísu.
Vonandi veitir þetta öðrum skólum innblástur og við fylgjumst jafnframt af áhuga með öðrum þeim nýjungum sem tilnefnd eru til Foreldraverðlaunanna. Fulltrúum Lækjarskóla er því ljúf skylda að vera viðstaddir verðlaunahátíð Heimilis og skóla á morgun, föstudaginn 21. maí í Safnahúsinu við Hverfisgötu.