• Hattvis

Háttvísiviðurkenning

6.10.2016

Í vikunni var afhent í Lækjarskóla viðurkenning fyrir háttvísi. Allir starfsmenn skólans taka þátt í að tilnefna bekk sem þeim finnst eiga skilið að fá viðurkenningu.  Við tilnefningu er skoðað hvaða bekkur er til fyrirmyndar t.d. að fara eftir SMT-reglum skólans, haga sér vel í mötuneyti, á göngum og úti.

Sá bekkur sem fær viðurkenningu fær farandbikar sem geymdur er í umsjónarstofu bekkjarins í 5 vikur ásamt viðurkenningarskjali sem hengja má upp í kennslustofu.  Næsta tímabil hefst 7. nóvember -5. desember.

Þeir bekkir sem fengu viðurkenningu eru;

  • Unglingadeild 10. GR
  • Miðstig 6. HÓS
  • Yngsta stig 3. KLR

Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is