Leikskólaheimsókn frá Arnarbergi

20.2.2018

Fimmtudaginn 15. febrúar komu elstu nemendur frá leikskólanum Arnarbergi í heimsókn til að skoða Lækjarskóla. Þetta var fjölmennur og áhugasamur hópur sem gekk um skólann með Sigríði Valdimarsdóttur, deildarstjóra.  Þau fengu að vita að hér eru þrír gangar; gulur, rauður og grænn og vita núna að 1. – 4. bekkur er á gula gangi. Þau sáu Svaninn á rauða gangi og lærðu að Svanurinn er merki skólans.


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is