Litla upplestrarkeppnin

16.5.2019

Í gær var litla upplestrarkeppnin haldin við hátíðlega athöfn hjá okkur í Lækjarskóla. Nemendur í 4. bekk eru búnir að undirbúa sig vel undanfarnar vikur og skilaði sú æfing sér svo sannarlega í fallegum upplestri og góðri skemmtun fyrir gesti. Fjölmargir foreldrar mættu til að horfa á og heiðursgestur var Ingibjörg Einarsdóttir frumkvöðull keppninnar sem færði nemendum skemmtilega nýja bók í tilefni keppninnar. Við erum svo sannarlega stolt af þessum frábæru krökkum. Litla-uppl



Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is