Skólastarf að loknu samkomubanni

30.4.2020

MÆTING Í ÞRIÐJU KENNSLUSTUND MÁNUDAGINN 4. MAÍ

Mánudaginn 4. maí nk. hefst skólastarf í grunnskólum Hafnarfjarðar samkvæmt stundatöflunni sem gilti áður en skólastarf var skert í samkomubanni. Kennsla í íþróttum og sundi hefst líka, þó eru framkvæmdir í Suðurbæjarlaug og gæti kennsla í þeim tímum því breyst þar til framkvæmdum lýkur. Íþróttakennarar munu upplýsa foreldra ef íþróttakennslan verður utanhúss.

Nemendur í Lækjarskóla eiga að mæta í skólann mánudaginn 4. maí í þriðju kennslustund, klukkan 9.50, en í upphafi mánudags hefur starfsfólk möguleika til að funda og undirbúnings. funda og undirbúnings. Nemendur í 9. bekk eiga að mæta í íþróttir í Kaplakrika kl. 9:50.

STUNDATAFLA SKÓLAÁRSINS GILDIR

Unnið verður eftir stundatöflu til vors og skólaslit munu fara fram út frá samþykktu skóladagatali. Meðal annars verður sameiginlegur skipulagsdagur 29. maí. Frímínútur verða með hefðbundnu sniði.

Frístundamiðstöðin Lækjarsel (1.-4. bekkur) mun starfa með sama hætti og fyrir samkomubann. Þá hefst frístundaakstur mánudaginn 4. maí. Í félagsmiðstöðinni Vitanum verða ekki sameiginlegir viðburðir í maí en slíkt endurskoðað ef tilmæli breytast 1. júní og þá verði hægt að vera með sameiginlega viðburði í júní. Vitinn verður engu að síður með hefðbundinn opnunartíma. Kennsla kennara Tónlistarskóla Hafnarfjarðar í Lækjarskóla hefst sömuleiðis.

Námsmat mun fara fram samkvæmt venju en hver skóli útfærir það á sinn hátt og beðið er skýrari fyrirmæla stjórnvalda um útskrift 10. bekkinga og innritun í framhaldsskóla.

SUMT FELLUR ÚT – ANNAÐ HELDUR SÉR

Það er þó ljóst að það verður að raða verkefnum í forgangsröð núna í maí þar sem hefðbundið skólastarf hefur ekki verið frá 16. mars sl. Það felur í sér að ekki verður mögulegt að sinna öllum hefðbundnum verkefnum í maímánuði eða þeim sem misst hefur verið af.

Grunnskólastjórnendur hafa komið sér saman um skipulag að vinna eftir til vors út frá sömu þáttum í öllum skólum. Þannig munu foreldraskemmtanir og útihátíðir með foreldrum ekki verða í vor þótt slíkt verði mögulegt með nemendum.

Vorhátíð skólans verður ekki þetta vorið. Árshátíðir nemenda falla niður en skoðað verður með aðrar skemmtanir undir lok skólaársins. Ferðalög verða í styttri kantinum, möguleiki á dagsferðum, og útskriftarsamkomur þarf að minnka til að of margir fullorðnir verði ekki staddir á sama stað á sama tíma. Lokahátíð Stóru Upplestrarkeppninnar verður haldin, þó með takmörkuðum fjölda í sal en hátíðinni verður streymt á vefnum svo allir geti fylgst með.

Frístundamiðstöðin Vitinn mun starfa með sama hætti og fyrir samkomubann. Þá hefst frístundaakstur mánudaginn 4. maí.

Í félagsmiðstöðinni Vitanum verða ekki sameiginlegir viðburðir í maí en slíkt endurskoðað ef tilmæli breytast 1. júní og þá verði hægt að vera með sameiginlega viðburði í júní. Vitinn verður engu að síður með hefðbundinn opnunartíma.

TILMÆLI TIL FORELDRA

Við biðjum foreldra að virða tveggja metra nálægðarregluna og koma ekki inn í skólahúsnæðið af tilefnislausu til vors heldur notast við rafræn samskipti eftir því sem við á.

MÖTUNEYTI & MATARÁSKRIFT

Mötuneyti Lækjarskóla opnar á ný mánudaginn 4. maí. Þannig mun á ný verða veittur hafragrautur að morgni í Lækjarskóla frá kl. 7.50-8.10, ávaxtaáskrift er um miðjan morgun, hádegismatur framreiddur í skólamötuneyti og loks síðdegishressing í frístundaheimili eins og áður. Þó hefur verið ákveðið að halda ekki sjálfskömmtun á mat í hádegi en nemendur munu áfram skammta sér grænmeti með matnum. Matseðil má sjá eins og áður á heimasíðu Skólamatar.

Foreldrar eru í raun búnir að greiða fyrir mat þar til um miðjan maí. Skólamatur mun senda fljótlega út greiðsluinnheimtuseðla til áskrifenda vegna þess tíma sem eftir verður af skólaárinu, þ.e. frá um miðjum maí og fram til loka skólaársins.

SÓTTVARNIR

Áfram verður lögð áhersla á sóttvarnir í skólanum þótt sóttvarnarhólf leggist af þann 4. maí og treyst verður áfram á samvinnu og samstöðu allra um að þvo sér vel og spritta hendur.

SKÓLASÓKN MIKILVÆG

Reglur um skólasókn í grunnskólum Hafnarfjarðar taka aftur gildi 4. maí eftir að hafa verið settar í bið meðan á samkomubannstímanum stóð. Það er mikilvægt að mæta í skólann og ætlast er til af skólunum að fylgja fast eftir að nemendur sæki skóla og styðji þá nemendur sem kvíða endurkomu í daglegt skólastarf.

Hefðbundin skólaþjónusta hefst á ný, t.d. teymisvinna vegna einstakra nemenda, greiningar og ráðgjöf sálfræðinga, talmeinafræðinga og kennsluráðgjafa og önnur skólaþjónusta eins og við á.

Ég vil biðja foreldra að vera, eins og áður, í góðu sambandi við umsjónarkennara barna sinna. Það er mikilvægt fyrir okkur að fá upplýsingar sem gætu auðveldað að fylgjast með líðan nemenda.

ÞAKKIR TIL FORELDRA

Með þessum breytingum sem nú taka gildi skiptir miklu að allir taka virkan þátt í að viðhalda þeim árangri sem hefur náðst í að stöðva kórónuveirufaraldurinn.

Við þökkum ykkur jákvæðni gagnvart þeim takmörkunum sem þurfti að setja á skólastarfið í mars og vonumst nú til að þessi breyting yfir í eðlilegt skólastarf komi til með að vera. Skólasókn í Lækjarskóla í samkomubanni hefur verið ágæt í samböngubanninu. Það er vel að verki staðið og fyrir það vil ég þakka ykkur kæru foreldrar. Það er nefnilega svo mikilvægt í ástandi sem þessu að reyna að viðhalda góðri rútínu, slíkt auðveldar og bætir líðan. Góð ástundun í samgöngubanninu mun auðvelda okkur nú þegar skólahald á aftur að verða með eins hefðbundunum hætti og kostur er.

Við hlökkum til að fá börnin ykkar í hefðbundið skólastarf á ný.

Takk fyrir ríkan skilning, gott samstarf, falleg skilaboð og góðar óskir.

30. apríl 2020.

Dögg Gunnarsdóttir, skólastjóri Lækjarskóla


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is