Kynningarmyndbönd um byggingar- og málmiðnað

Mennta- og menningarmálaráðuneytið ásamt Samiðn hafa látið útbúa fjögur stutt myndbönd um þau tækifæri sem felast í störfum í byggingar- og málmiðnaði. Markmiðið er að myndböndin gefi góða innsýn í þessi störf og kveiki áhuga hjá ungu fólki sem er að velja sér framtíðarstarf. Eins er markmiðið að vekja athygli nemenda og foreldra þeirra á hagnýtu og skemmtilegu námi sem opnar leiðir inn í fjölbreytt framhaldsnám og starfsvettvang þar sem eftirspurn er eftir fólki og framtíðarhorfur góðar.
Hvert myndband er 90 sekúnda langt og er mikilvægt að horfa á þau öll til að fá heildarmyndina.

Hér er hægt að skoða myndböndin en þau má finna inn á Youtube:

Smíða
Byggja
Framleiða
Um störfin

Eins lét Rafiðnaðarsambandið nýlega gera fimm myndbönd um störf í rafiðnaði :

Störf í rafiðnaði
Óbeint rafmagn
Hvernig komst ég hingað?
Framtíðin, menntun og störf
Allt hægt með rafmagni

Myndböndin eru hluti af verkefni sem unnið er í ráðuneytinu sem hefur það markmið að efla kynningu á iðn-, verk- og tækninámi. Sjá nánar: http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/forsidugreinar/nr/8010


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is