Frístundaheimilið Lækjarsel

Frístundaheimilið Lækjarsel býður uppá fjölbreytt tómstundastarf fyrir nemendur í 1. - 4. bekk í Lækjarskóla eftir að daglegum skólatíma lýkur.
Foreldrar skrá börn sín eftir þörfum hvers og eins.

1 og 2 bekkur eru staðsett á yngri deildar gangi á neðstu hæð og 3 og 4 bekkur eru staðsett í íþróttahúsi Lækjarskóla.

Opnunartími er frá klukkan 13:20 til 17:00 á virkum dögum. Þegar frí er í skólanum á virkum dögum er opið í frístundaheimilinu frá klukkan 8:00 um morguninn og til 17:00 að undanskildu vetrarfríi en þá er lokað í frístundaheimilinu. Þessa daga er auglýst sérstaklega eftir skráningu þeirra barna sem eiga að mæta.

Í frístundaheimilinu kynnast börnin hinum ýmsu tómstundum. Leitast er við að hafa starfið sem fjölbreyttast svo að allir finni eitthvað við sitt hæfi m.a. með útiveru, fjölbreyttum leikföngum, spilum, föndurefni og kubbum.

Deildarstjóri er Sigmar Ingi Sigurgeirsson og er netfangið hans sigmaringi@laekjarskoli.is  og sími 664-5889.


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is