Appelsínugul viðvörun að morgni þriðjudags 7.febrúar

6.2.2023

Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið þriðjudaginn 7. feb. kl. 06:00 – 08:00. Spáð er sunnan stormi eða roki og mikilli úrkomu 20-28 m/s. Hvassast verður í efri byggðum og við ströndina. Mikil úrkoma, slydda eða snjókoma. Veðrið gengur mjög hratt yfir en færð getur spillst á meðan á því stendur. Almenna reglan er sú að skóla- og frístundastarf fellur ekki niður nema það sé sérstaklega tilkynnt. Foreldrar meta sjálfir hvort þeir treysta börnum sínum til að ganga í og úr skóla, miðað við aldur og aðstæður. Á heimasíðu skólans má finna leiðbeiningar um viðbrögð vegna röskunar á skólastarfi. Sjá hér

https://www.laekjarskoli.is/skolinn/vidbragds--og-forvarnaraaetlanir/ og einnig hér https://www.shs.is/hvad-get-eg-gert/roskun-a-skolastarfi 


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is