Sumarlokun skrifstofu

15.6.2015

Dagana 16. - 19. júní er skrifstofa skólans opin virka daga frá kl. 9:00-12:00.  Skrifstofan opnar aftur að loknu sumarleyfi miðvikudaginn 5. ágúst.

Skólasetning verður mánudaginn 24. ágúst og verður tímasetning auglýst síðar.
Skóladagatal fyrir skólaárið 2015-2016 er á heimasíðu skólans og einnig er á heimasíðunni hægt að nálgast innkaupalista  fyrir næsta skólaár undir „Skólinn / Hagnýtar upplýsingar“.
 
Starfsfólk Lækjarskóla óskar nemendum og foreldrum þeirra góðra stunda í sumar.


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is