Fjölgreindaleikar Lækjarskóla

5.10.2015

Þeir eru nú haldnir í fimmta sinn og byggja sem fyrr á fjölgreindarkenningu Gardners.
Allir nemendur skólans taka þátt og munu þeir eldri styðja þá yngri.
Nemendur taka þátt í 36 stöðvum, 18 hvorn daginn.  Annan daginn vinna nemendur úti í kringum skólann og hinn daginn innan skólans. Hver nemandi fær sitt númer og munu þeir sem eru með númerið 1-18 vera inni á miðvikudag og úti á fimmtudag en þeir sem eru með númerið frá 19-36 vera utanhúss á miðvikudag og innanhúss á fimmtudag. Umsjónarkennarar munu senda nemendur heim með sín númer daginn fyrir leikana.

Þessa daga hefst skólastarf kl. 08:00 og lýkur kl. 13:10. Nemendur þurfa ekki að koma með skólatöskur eða námsgögn þar sem þeir verða á mikilli hreyfingu og fara milli 18 stöðva hvorn dag. Allir nemendur þurfa að taka með sér nesti og best væri að hafa það í  léttum bakpoka ásamt fatnaði eftir veðri.  Þeir sem eru í mataráskrift fá sinn mat í mötuneyti.

Mikil ánægja hefur verið með leikana undanfarin ár og við vonumst að sjálfsögðu til að allir njóti þess að taka þátt í þetta skiptið.
                                                                                                                                           skólastjórnendur

 


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is