Stíll 2015 – sigur Lækjarskóla í undankeppninni!

12.11.2015

Stíll er árleg hönnunarkeppni á milli félagsmiðstöðva þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun út frá ákveðnu þema. Þemað í ár er náttúran.
Þær Rósa, Hlökk, Heiða og Anna gerðu sér lítið fyrir og unnu undankeppnina á föstudanginn var sem var haldin í Áslandsskóla. Stúlkurnar vinna með norðurljósin í hönnun sinni.
Þær eru núna á fullu við að útfæra búning, förðun og sviðsframkomu enn frekar og búa til betri möppu.
Úrslitakeppnin verður haldin í Hörpunni þann 28. nóvember klukkan 15:00.
Áfram stelpur!


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is