Lækjarskóli grunnskólameistari 2015-2016

9.5.2016

Lækjarskóli er sigurvegari í íþróttamóti grunnskóla Hafnarfjarðar skólaárið 2015-2016. Mótið er haldið árlega og eru það 9. bekkingar grunnskólanna sem keppa fyrir hönd skólanna ár hvert. Keppnin var haldin á Ásvöllum í ár en skipst er á að halda keppnina á Ásvöllum og í Kaplakrika. Sömuleiðis er örlítið mismunandi eftir keppnisstöðum í hvaða íþróttagreinum er keppt hverju sinni en sigurvegari er sá skóli sem hlýtur bestan samanlagðan fjölda í öllum keppnisgreinum. Keppnisgreinar eru allar hópgreinar eða lagður er saman einstaklingsárangur í einstaklingsgreinum ef slíkt á við. Öll lið eru kynjablönduð eftir ákveðnu kerfi. Í ár var keppt í sundi, fótbolta, bandí, körfubolta og víðavangshlaupi (kringum Ástjörn).
Lækjarskóli sigraði með 37 sigum, Víðistaðaskóli varð annar með 34 stig og Setbergsskóli þriðji með 30 stig. Í einstaka keppnisgreinum sigraði Setbergs-skóli í fótbolta, Áslandsskóli í bandí, Víðistaðaskóli í sundi og Lækjarskóli í körfubolta og víðavangshlaupi.


Lækjarskóli | Sólvangsvegi 4, 220 Hafnarfjörður
Sími: 555-0585 | Netfang: skoli@laekjarskoli.is